5G kort

5G farsímakerfi í heiminum

no signal icon

Síðast uppfært:

Hvernig virka nPerf kortin?

Hvar verða gögnin til?

Gögnum er safnað saman af notendum sem gera prófanir með nPerf appinu. Þetta eru prófanir sem eru framkvæmdar við raunverulegar aðstæður, úti í mörkinni. Ef þú vilt taka þátt þá er það eina sem þarf að gera er að vista nPerf-appið í snjallsímanum. Því meiri gögn sem safnast saman, því ítarlegri verða kortin.

Hvernig eru uppfærslur framkvæmdar?

Tölva uppfærir netútbreiðslukortin á klukkustundarfresti. Hraðakortin eru uppfærð á 15 mínútna fresti . Gögn eru birt í tvö ár. Að tveimur árum liðnum eru elstu kortagögnin fjarlægð mánaðarlega.

Hversu áreiðanlegt og nákvæmt er þetta?

Prófanir eru framkvæmdar með notendabúnaði. Nákvæmni staðsetningar er háð móttökugæðum á GPS-merkinu þegar prófunin er framkvæmd. Hvað útbreiðslu snertir vistum við eingöngu gögn sem eru með mestu staðsetningarnákvæmni um 50 metrar . Hvað bitahraða í niðurhali varðar eru mörkin allt að 200 metrar.

Hvar get ég nálgast óunnin gögn?

Ertu að leita að gögnum um netútbreiðslu eða um nPerf prófanir (bitahraða, töf, vafur, myndstreymi) á CSV-sniði til frjálsrar notkunar? Ekki málið! Hafðu samband við okkur til að fá tilboð.

Er til verkfæri í PRO til að birta útbreiðslukortin myndrænt?

Já. Þetta verkfæri er aðallega ætlað símafyrirtækjunum. Það hefur verið fellt inn í mælaborðið sem inniheldur gögn um netframmistöðuna frá öllum símafyrirtækjunum innan landsins, auk þess að búa yfir niðurstöðum hraðamælinga og gögn varðandi útbreiðslu. Þessi gögn má kalla fram með því að beita síum (ekkert símasamband, 2G, 3G, 4G, 4G+, 5G) yfir valið tímabil (til dæmis fyrir síðastliðna tvo mánuði). Þetta er gott verkfæri til að rekja gang mála með nýrri tækni, sjá hvernig keppinautunum gengur og koma auga á skuggasvæði í útbreiðslunni.

Hvað með útbreiðslukort á 5G?

Framsetningin er frábrugðin venjulegum útbreiðslukortum frá nPerf.
Þau leyfa að fylgjast með framgangi á 5G um heim allan og með vísbendingum um gæðin varðandi viðkomandi útbreiðslu.
Á hinn bóginn ætti að taka fram að á tilteknum stöðum þar sem 5G er að finna er ekki víst að netin séu í opinberum rekstri. Það má vel vera að verið sé að gera tæknilegar prófanir á þeim af annaðhvort rekstraraðilunum eða undirverktökum þeirra. Til að fá ítarlegri upplýsingar um 5G útbreiðslu hvers þjónustuveitanda sjá hefðbundin kort frá nPerf

Varðandi söfnun á 5G mælingum þá skal tekið fram að það er gert á sama hátt eins með eldri tækni, það er með notkun apps en munurinn er sá þátttakendur verða að sjálfsögðu að vera með 5G síma og þar til bært SIM-kort. Mælingarnar eru því framkvæmdar við raunaðstæður, við notkun. Ef þú vilt taka þátt í að bæta 5G kort nPerf þá þarf bara, eftir búið er að uppfæra síma og SIM-kort í 5G, eða sækja nPerf appið og setja í snjallsímann. Með meiri gögnum fæst fullkomnari mynd!